Endurbætur á opnu svæði Reykjavíkurborgar við Rofabæ

Endurbætur á opnu svæði Reykjavíkurborgar við Rofabæ

Opið svæði í eigu Reykjavíkurborgar við Rofabæ á móts við Vorsabæ, Hlaðbæ og Þykkvabæjar. Þarna er stórt malbikað plan með einni lélegri körfu. Þetta svæði er ónothæft í þeirri mynd sem það er núna. En þarna mætti setja upp körfur fyrir fullorðna og lægri körfur fyrir börnin. Einnig er hægt að setja upp skotboltavöll, tennisvöll, blakvöll ofl. Myndi vilja sjá fagfólk Reykjavíkurborgar teikna þetta svæði upp og koma með hugmydir af endurbótum til að lífga upp á mannlífið á þessu svæði.

Points

Þetta svæði er tilvalið til að fjölga opnum svæðum í hverfinu þar sem börn, fullorðnir og fjölskyldur geta farið saman í leik. Þetta svæði er malbikað nú þegar þó þyrfti líklegast að lagfæra það aðeins En svo það þarf kannski ekki mikið til að gera þetta að aðlaðandi svæði fyrir okkur íbúa Árbæjar.

Svæðum í hverfinu fyrir krakkana að hittast og leika sér hefur fækkað í gegnum árin. Mörg lóðarfélög eru með leikvelli fyrir yngstu krakkana en svæði sbr. þetta þar sem eldri krakkar geta leikið sér hafa grotnað niður. Þarna nálægt er einnig grasblettur/fótboltavöllur sem krakkarnir sóttu nokkuð í, sérstaklega á meðan HM í fótbólta stóð yfir. Það mætti bæta umhirðu hans um leið og malbikaða planið yrði tekið í gegn.

Það bráðvantar að laga aðstöðu og koma upp góðum leikvelli á þessu svæði. Ný leiktæki eins og eru í nýju hverfunum bráð vantar og fótboltavöll mætti laga. Einnig væri gott ef fólk gæti lagt bílunum sínum nálægt vellinum þegar þeir mæta með börn á svæðið. Væri sniðugt að setja upp grill aðstöðu og girða í kringum þetta svæði

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information