Skábílastæði í Hvassaleiti - aukið umferðaröryggi

Skábílastæði í Hvassaleiti - aukið umferðaröryggi

Það er löngu vitað að umferðin við þessa götu er oft yfir hámarkshraða og mikið áhyggjuefni foreldra sem búa við götuna og í nágrenni. Hægt er að breyta bílastæðum við götuna í skábílastæði með auðveldum hætti. Þannig náum við fram tveimur markmiðum. Annars vegar fást fleiri bílastæði sem vonandi dregur úr því að fólk hreinlega leggi bílnum sínum á götunni sjálfri (akreininni frá Listabraut að Háaleitisbraut) og hins vegar þrengist gatan líka við það sem dregur vonandi úr aksturshraða ökufólks.

Points

Þessi útfærsla eykur umferðaröryggi við götuna sem er þörf á og svo eykur hún fjölda bílstæða við götuna sem einnig er þörf á.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information